
Ýdalir kom út fyrir 2 árum í dag!
Ég er alltaf svolítið veikur fyrir konseptplötum. Hetjan í þessari sögu er “skíða- og bogfimiguðin” Ullur frá Ýdölum. Frábær plata!
Bibbi, bassaleikari Skálmaldar, fer yfir þetta allt á YouTube rás þeirra, en ég ætla rétt að snerta á þessu hér.
Hlið A
- Ýr
Ósunginn inngangur. Ýr eða ýrviður er viðurinn sem Ýdalir eru nefndir eftir. - Ýdalir
Lýsing á staðháttum. Allt fallegt og í blóma, en svo er gerð árás. - Urður
Fyrsta örlaganornin af þremur. Fortíð
Hlið B
- Ratatoskur
Íkorni á trénu Yggdrasill, sem flytur fréttir á milli góðs og ills. - Verðandi
Næsta örlaganorn af þremur. Nútíð.
Hlið C
- Veðurfölnir
Veðurfölnir er haukur í auga ernis við enda Yggdrasils. Góði samherjinn. - Skuld
Síðasta örlaganornin. Framtíð. - Níðhöggur
Snákur við hinn enda Yggdrasils. Vondi kallinn.
Hlið D
- Ullur
Söguhetjan og rómantík. Epískur endir og gaman að heyra Jón Geir syngja.

Frábær plata!
Baukrétt!