Undanriðill 9
Afmælisplata #5: Nirvana – Nevermind
Bókin “1001 Albums You Must Hear Before You Die” kom fyrst út árið 2005 en hefur verið endurútgefin nokkrum sinnum, þar sem einhverjar plötur detta út og aðrar koma inn. Ef einhver hefur áhuga á að hlusta á þetta allt saman, þá kemur vefsíðan 1001albumsgenerator.com sterk inn.
Þann 11. janúar 2026 ákvað ég að hefja þetta verkefni. Ég bjó mér til aðgang, en vefsíðan velur eina plötu af handahófi úr bókinni fyrir notanda að hlusta á.
Auk þess eru notendur að gefa einkunnir, skrifa gagnrýni og ýmis konar tölfræði sem er hægt að skoða þarna. Plöturnar eru orðnar 1089 talsins eftir allar endurútgáfur á bókinni.
Eftir hvern skammt af 30 plötum, mun ég gera undanriðil þar sem ég raða plötunum í sex flokka með sjö pláss í hverjum flokk. Það eru semsagt 42 pláss fyrir 30 plötur í hverjum undanriðli.
Þegar yfirferð er lokið mun ég gera milliriðla með plötum úr efstu flokkum undanriðla.
Milliriðill 1: Efsti flokkur undanriðla 1-6
Milliriðill 2: Efsti flokkur undanriðla 7-12
Milliriðill 3: Efsti flokkur undanriðla 13-18
Milliriðill 4: Efsti flokkur undanriðla 19-24
Milliriðill 5: Efsti flokkur undanriðla 25-30
Milliriðill 6: Efsti flokkur undanriðla 31-37
Að lokum mun ég gera lokauppgjör, þar sem ég raða plötum úr efstu flokkum milliriðla í sex flokka.
Afmælisplata #25: Radiohead – The Bends Afmælisplata #33: The Beatles – Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band
Afmælisplata #16: Eagles – Hotel California Afmælisplata #40: AC⚡️DC – Back in Black