Afmælisplata #3: Pearl Jam – Ten

2023 útgáfa – Discogs: €22.97

Ten kom út fyrir 34 árum í dag!

Þessi plata er einn af hornsteinum grunge tímabilsins. Stóru lögin eru á A hlið, en B hliðin er engu síðri.
Frábær plata út í gegn!

Hlið One
  1. Once
    Maður missir vitið og endar sem raðmorðingi.
  2. Even Flow
    Hér er umfangsefnið heimilislaus maður.
  3. Alive
    Móðir tjáir syni sínum að faðir hans sé í raun stjúpfaðir. Svolítið eins og í fóstbræðrum.
  4. Why Go
    Stúlka á geðsjúkrahúsi og spurningin er af hverju hún ætti að fara heim?
  5. Black
    Frábær ballaða. Eitthvað bras að sleppa takinu.
  6. Jeremy
    Átakanlegt lag, byggt á sannsögulegum atburð þar sem drengur skaut sig fyrir framan bekkinn sinn.
Hlið Two
  1. Oceans
    Brimbrettaballaða um Beth.
  2. Porch
    Óræður texti og tónlistin svolítið út um allt.
  3. Garden
    Þetta lag er annað hvort um Persaflóastríðið, fóstureyðingar eða eitthvað allt annað.
  4. Deep
    Hér er verið að glíma við ólíkar aðstæður í hverju versi. Alltaf einhver vandamál.
  5. Release
    Pabbavesen á Vedder go andlegt ferðalag í gangi hér. Lagið endar eins og platan byrjar.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top