Afmælisplata #1: Mr. Bungle – Mr. Bungle

2014 útgáfa – Discogs: €43.84

Mr. Bungle kom út fyrir 34 árum í dag!

Frekar óaðgengileg og verulega óreiðukennd tónlist með dónalegum, óhugnanlegum og kómískum textum. Ég hafði ekki sökkt mér djúpt í þessa plötu áður, en sé ekki eftir því.

Hlið 1
  1. Quote Unquote
    Viðfangsefnið er limalaus, blindur og heyrnarlaus maður með saumað fyrir kjaftinn. Hann skynjar veröldina eingöngu með nefinu.
  2. Slowly Growing Deaf
    Óræð gagnrýni á vaxandi taktleysi samfélagsins? Lagið endar í prump og kúk.
  3. Squeeze Me Macaroni
    Matarklám og “knick knack paddy whack” viðlag.
  4. Carousel
    Hringekja lífsins. Lífið er sirkus og við trúðar. Eitthvað svoleiðis…
Hlið 2
  1. Egg
    Tilvistarpælingar með eggjamyndlíkingum.
  2. Stubb (A Dub)
    Lífferill fjölskylduhunds. Gargið um miðbik er hápunktur!
  3. My Ass Is On Fire
    Lagið sem kom mér á bragðið. Ekki hugmynd um hvað það fjallar, en farið varlega í sterkan mat.
Hlið 3
  1. The Girls of Porn
    Dónalag sem er mögulega með einhverja dýpri meiningu.
  2. Love is a Fist
    Einhvers konar ofbeldishneigð.
  3. Dead Goon
    Einstaklingur með köfnunaráráttu sem kyrkir sig til bana.
Hlið 4
Engin lög, aðeins þessi mynd.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top