
Nevermind er 34 ára í dag!
Þetta er mögulega fyrsti geisladiskur sem ég keypti mér. Mig minnir að ég hafi keypt hann í plötubúð í Hamraborg, sem ég man ekki hvað hét.
Fyrsti “Classic Albums” þáttur sem ég sá var örugglega að fjalla um þessa plötu.
Hlið 1
- Smells Like Teen Spirit
Þarf nokkuð að ræða þetta lag? - In Bloom
Viðlagið er mjög grípandi og textinn smá fyndinn. Lagið notar allar 12 nóturnar segir Rick Beato, en hvað veit ég? - Come As You Are
Á bæjarskilti Aberdeen, fæðingarstað Kurt Cobain, stendur Welcome to Aberdeen og þar undir Come As You Are - Breed
Textarnir þeirra eru ekki auðskiljanlegir. “We could plant a house, we could build a tree” þykir mér sniðugt. - Lithium
Lagið fer nokkuð hratt upp og niður og textinn er til skiptis gleði og sorg. Það er svona geðhvarfasýkisbragur á þessu. - Polly
Byggt á sannsögulegum ljótum atburð. Eina lagið á plötunni með gamla trommaranum, Chad Channing.
Hlið 2
- Territorial Pissings
Þetta lag fannst mér einhvern tíma mesti tryllingur mögulegur í tónlist. - Drain You
Þráhyggju / ástarlag. - Lounge Act
Þetta er um fyrrverandi hans Kurt, eins og margt á plötunni skv. internetinu. - Stay Away
Lagið endar á línunni “God is gay”. Ég sá það einhvern tíma á rafmagnskassa í Garðabæ þegar ég var í göngutúr með hundinn Loka. Ætli þetta hafi verið Nirvana tilvitnun? - On a Plain
Ég hugsa um venjulega sléttur þegar ég heyri lagatitilinn og get ekki kvartað. - Something in the Way
Þetta hlýtur að vera um heimilislausa grænmetisætu
“Leynilagið” Endless, Nameless er ekki á plötunni minni.
