
Dirt er 33 ára í dag!
Ég hlustaði eiginlega ekkert á Alice in Chains fyrr en upp úr aldamótum. Flestallir textar þeirra eru um nöturlega tilveru eiturlyfjafíkilsins. Þó ég tengi sem betur fer ekki persónulega við eiturlyfjafíkn, þá finnst mér áhrifamikið að heyra svona tilfinningaþrungna og átakanlega texta. Auk þess er tónlistin frábær og rödd Layne Staley einstök.
Hlið A
- Them Bones
Platan hefst á lagi um feigðina. - Dam That River
Jerry Cantrell samdi þetta eftir stimpingar við Sean Kinney - Rain When I Die
Það fer tvennum sögum af því hvort hafi rignt þegar Layne Staley dó. Þvílíkt viðlag!
Hlið B
- Down in a Hole
Þunglyndi og/eða fíkn. Þetta er allavega fallegt volæði. - Sickman
Sjálfsfyrirlitning fíkilsins. - Rooster
Jerry Cantrell semur þetta um föður sinn, sem var í Víetnamstríðinu.
Hlið C
- Junkhead
Meira um eiturlyf. - Dirt
Meiri sjálfsfyrirlitning og eymd. - God Smack
Áfram sungið um fíkn og nöturleika. - Untitled
Ekki á lagalista. Tom Araya úr Slayer með smá Black Sabbath tilvitnun.
Hlið D
- Hate to Feel
Áframhaldandi vesöld. - Angry Chair
Ég fór af stað með að covera þetta fyrir ca 15 árum síðan. Það er enn á hold. - Would?
Þetta var samið til heiðurs Andy Wood úr Mother Love Bone. Miðað við þema plötunnar, þá kemur kannski ekki á óvart að hann hafi dáið úr of stórum skammti.
