Afmælisplata #6: Black Sabbath – Paranoid

2024 útgáfa – Discogs: €53.70

Paranoid er 55 ára í dag!

Þetta er auðvitað ein merkilegasta plata í sögu þungarokksins. Sem dæmi, þá spiluðu Black Sabbath aðeins fjögur lög á lokatónleikum sínum, þar af voru þrjú af hlið A á þessari plötu!
Það er samt alveg óhætt að segja að þessi plata sé góð báðu megin.

Hlið A
  1. War Pigs
    Stríðsádeila
  2. Paranoid
    Vantaði “filler” á plötuna. Samið á korteri og varð titillag plötunnar og eitt þeirra þekktasta.
  3. Planet Caravan
    Pantera komu mér á bragðið hér. Rómantísk geimferð.
  4. Iron Man
    Raulaði oft eitthvað bull við laglínuna þegar ég var yngri. Vissi ekkert hvaðan ég þekkti melódíuna. Einnig söng ég um Árna járnkarl, en það er ótengt.
Hlið B
  1. Electric Funeral
    Annað lag sem Pantera kynntu mér fyrir. Kjarnorkustyrjöld.
  2. Hand of Doom
    Eiturlyfjafíkn hermann eftir Víetnam.
  3. Rat Salad
    Instrumental – trommusóló!
  4. Fairies Wear Boots
    Annað hvort er umfjöllunarefnið “skinheads” eða sýrutripp (eða bæði).

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top