Afmælisplata #38: Primus – Brown Album

Brown Album er 29 ára í dag!

Fimmta plata Primus og sú fyrri af tveimur með trommaranum Brain. Hún er nokkuð frábrugðin eldra efni og fékk svolítið blendnar viðtökur, en ég fíla þetta.

Hlið A
  1. The Return of Sathington Willoughby
    Framhald af laginu “Sathington Willoughby” af fyrstu plötunni. Toppmaður!
  2. Fisticuffs
    Um slagsmálahundinn James Ambrose, ef það var raunverulega nafnið hans.
  3. Goldenboy
    RÚV notuðu stef úr þessu undir EM í handbolta 2002
  4. Over the Falls
    Maður sem ætlar niður Niagara foss
Hlið B
  1. Shake Hands with Beef
    Samið með grænmetisætu í huga sem fór stundum á Taco Bell. RÚV notuðu þetta minnir mig líka á EM í handbolta 2002.
  2. Camelback Cinema
    Ekki bílabíó, heldur kamelbíó?
  3. Hats Off
    to (Roy) Harper er með Led Zeppelin. Þetta er ævisaga einhvers annars.
  4. Puddin Taine
    Woo-hoo! Puddin Tain er einnig nefndur í laginu Sgt. Baker af annarri plötu þeirra.
Hlið C
  1. Bob’s Party Time Lounge
    Gott partí. Mögulega tengt Bob C Cock, AKA Adam Gates.
  2. Duchess & the Proverbial Mind Spread
    Elska þessa bassalínu. Fyrsta tónleikaupptaka með nýja trommaranum John Hoffman var af þessu lagi.
  3. Restin Bones
    Menn verða að hvíla sig
Hlið D
  1. Coddingtown
    Umfjöllunarefnið er ferð í verslunarmiðstöðina í Coddingtown. Les Claypool býr (eða bjó) einhvers staðar í nágrenni.
  2. Kalamazoo
    Tilvitnun í “(I’ve Got a Gal In) Kalamazoo” eftir Glenn Miller
  3. The Chastising of Renegade
    Renegade er uppátækjasamur óþekktarormur.
  4. Arnie
    Nafn sem hefur komið fram í textum á öðrum lögum á plötunni. Ég veit ekki hvort þetta sé alltaf sami aðili.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top