
Sailing the Seas of Cheese er 35 ára í dag!
Önnur breiðskífa Primus er ekki allra, en stórkostlegt verk að mínu mati. Þeir hafa einstakan hljóðheim, þar sem bassinn er í forgrunni og textar yfirleitt eitthvað spaugilegir. Ég elska þetta.
Hlið A
- Seas of Cheese
Léttur inngangur. - Here Come the Bastards
Fyrsta alvöru lagið og fyrsta sem ég þeir spiluðu þegar ég sá þá í fyrsta skipti. Falleg stund. - Sgt. Baker
Hægri, vinstri og flauta hjá Baker liðþjálfa. - American Life
Grípandi bassalína endurtekin í gegnum allt lagið. Ameríski “draumurinn”. - Jerry Was a Race Car Driver
Þekktasta lag plötunnar. Saga af kappakstursmanninum Jerry. - Eleven
Deep cut í skrítnum takti. Æ æ æ. - Is It Luck?
Ég hugsa óvenju oft um það hvort það sé tilviljun að sokkar og skór séu samstæðir.
Hlið B
- Grandad’s Little Ditty
Smá millikafli í sturtu sem heldur plötunni á floti í ostahafinu. - Tommy the Cat
Algjör negla. Say it baby! - Sathington Waltz
Annar millikafli. Annar Sathington, þ.e. Sathington Willoughby kemur fyrir á fyrstu og fimmtu plötu. - These Damned Blue-Collar Tweekers
Vörubílstjórar á amfetamíni. - Fish On (Fisherman Chronicles Chapter II)
Annar hluti fiskisögu sem hófst á fyrstu plötu. Þriðji hluti er á Green Naugahyde. - Los Bastardos
Netverslun þeirra heitir Club Bastardo.
