
Frizzle Fry er 36 ára í dag!
Fyrsta breiðskífa Primus. Þeir hafa einstakan hljóðheim og þetta er frábær plata sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Todd Huth samdi flestar gítarmelódíurnar, en Ler LaLonde hafði tekið við gítarnum þegar kom að upptökum plötunnar.
Hlið A
- To Defy the Laws of Tradition
Lagið byrjar á tilvísun í Rush. Góðlátlegt grín um kjarkinn sem þarf til að ögra hefðum. - Groundhog’s Day
Klassík sem var notuð í geimverumyndbandi fjöllistahópsins Burger Beer - Too Many Puppies
Ef mér skjátlast ekki, þá flutti hljómsveitin Schneider þetta á einhverjum viðburði í MA, við fínar undirtektir. Fyrsta lagið sem Les Claypool samdi. - Mr. Knowitall
Svokallaður Besserwisser á þýsku. Textabrotið “perfection is my middle name, and whatever rhymes with eloquent” þykir mér mjög gott í þessu samhengi. - Frizzle Fry
Internetið segir að titillagið sé um sýrutripp. Ég ætla ekki að véfengja það. - John the Fisherman
Les Claypool er mikill veiðimaður. Þetta er fyrsti singúll og lagið er í einhverjum Guitar Hero leik. Kirk Hammet kemur við sögu í tónlistarmyndbandinu. - You Can’t Kill Michael Malloy
Ég flutti fyrirlestur um þennan ótrúlega mann. Það var í enskutíma minnir mig. Ótrúleg saga!
Hlið B
- The Toys Go Winding Down
Breytt útgáfa af laginu Toyz 1988, sem Sausage gaf út síðar. - Pudding Time
Ef ég skil rétt, þá er umfjöllunarefnið neysluhyggja. - Sathington Willoughby
Stutt kynning á Sathington Willoughby sem þeir kynna svo betur á Brown Album. - Spegetti Western
Iðjuleysingjar að vaka fram eftir, reykja gras, horfa á sjónvarp og eitthvað að slæpast. Það skortir þó enga framtakssemi í hljóðfæraleikinn. - Harold of the Rocks
Hressandi og hnyttinn texti um krakk fíkil. Endir lagsins er stórkostlegur. - To Defy
Platan “klárast” með vísun í upphafslagið. - Hello Skinny/Constantinople
Þetta er bónuslag á seinni útgáfum plötunnar. Ábreiða af tveimur lögum með the Residents.
