Afmælisplata #22: Skálmöld – Baldur

2025 útgáfa – Discogs: aldrei seld og engin til sölu

Baldur er 15 ára í dag!

Ég þekkti Skálmöld ekki fyrr en 9. febrúar 2013 og upplifði þessa plötu því ekki í rauntíma, en þykir hún afskaplega vel heppnuð. Þemaplötur eru oftast aðeins áhugaverðari en “samhengislausar” plötur.

Hlið A
  1. Heima
    Baldur á glæsilegt bú og fjölskyldu. Allt í blóma, en einhver ókyrrð færist yfir í lokin.
  2. Árás
    Baldur skreppur út á fjörð. Einhver ófreskja ræðst á bæinn og drepur allt sem hann unni.
  3. Sorg
    Baldur er bugaður. Öll fjölskyldan er dáin.
  4. Upprisa
    Baldur finnur neistan kvikna. Nú á að hefna sín.
  5. För
    Baldur hefur hefndarför sína.
  6. Draumur
    Baldur dreymir.
Hlið B
  1. Kvaðning
    Baldur í slagtogi við vini sína Gunnar Jarl og Grím nálgast óvininn.
  2. Hefnd
    Baldur og félagar mæta skepnunni og bana henni.
  3. Dauði
    Baldur deyr í átökunum, ásamt vinum sínum.
  4. Valhöll
    Baldur er mættur í Valhöll og skálar með Gunnari Jarli og Grími.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top