Musicland: 3:33

Í plötubúðinni Musicland hittast tónlistarunnendur reglulega til að hlusta á og ræða tónlist. Þema er ákveðið fyrir hvert kvöld, en fyrirkomulagið er þannig að þáttakandi kynnir inn lag sem er spilað. Þegar laginu lýkur kynnir næsti þáttakandi sitt lag og þannig gengur þetta koll af kolli, með einhverjum umræðum inn á milli.
Gjarnan eru þáttakendur með plötur með sér og á meðan lagið þeirra ómar, er eintakið látið ganga. Yfirleitt náum við 2-3 umferðum, en það fer eftir fjölda þáttakenda og lengd laga.

Ég undirbý mig með forvali á lögum af plötum úr safninu mínu sem passa í þema kvöldsins. Ég tek svo lokaákvörðun varðandi íslensk lög og þýði mögulega texta yfir á þýsku fyrir áhugasama.
Ég mæti þó með allt forvalið á þemakvöldið og nái ég inn þriðja lagi, þá vel ég það miðað við stemmningu.

3:33

Þemað á mínu fyrsta kvöldi var “lög styttri en 3 mínútur og 33 sekúndur”, en ég mætti ekki með neinar plötur og forvalið var býsna stórt!

Það sem náði á playlistann var:

  • Jet Black Joe – Take Me Away
  • Primus – Jerry Was a Race Car Driver
  • Skálmöld – Heima

Skálmöld vakti forvitni hlustenda, svo við lokuðum kvöldinu á að spila Kvaðningu við góðar undirtektir. Í framhaldi voru nokkrir sem keyptu Ýdali og Skálmöld bættist einnig í vöruúrvalið í plötubúðinni.

Hér er svo playlisti kvöldsins á Spotify, en það voru nokkur lög þetta kvöldið sem finnast ekki þar, svo hér eru YouTube linkar á þau:

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top