Afmælisplata #23: The Doors – The Doors

2021 útgáfa – Discogs: €25.80

Fyrsta plata The Doors er 59 ára í dag!

Þetta er gríðarlega áhrifamikil plata og einn af hornsteinum sýrurokks, þó ýmsar fleiri tónlistarstefnur séu þarna í gangi. Það hjálpar svo auðvitað til með dulúðina að Jim Morrison sé þetta átrúnaðargoð í 27 ára klúbbnum.
Ég er ekki djúpt sokkinn í þessar pælingar en þetta er eiguleg plata sem ég hef nokkuð gaman af.

Hlið One
  1. Break On Through (To the Other Side)
    Doors í hnotskurn í fyrsta lagi. Mögulega um sýrutripp?
  2. Soul Kitchen
    Vísun í Olivia’s Place. Veitingastaður í Kaliforníu
  3. The Crystal Ship
    Ástarlag um fyrstu kærustu Jim Morrison, samið stuttu eftir sambandsslit.
  4. Twentieth Century Fox
    Háðsádeila um yfirborðskenndan tískuiðnaðinn.
  5. Alabama Song (Whisky Bar)
    Ábreiða af ljóði eftir Elisabeth Hauptmann.
  6. Light My Fire
    Þekktasta lagið þeirra.
Hlið Two
  1. Back Door Man
    Ábreiða af Willie Dixon lagi. Hann fékk meira að segja stefgjöld, segir internetið.
  2. I Looked at You
    Það er bjartara yfir þessu en flestu öðru á plötunni. Saklaust og upplífgandi.
  3. End of the Night
    Draumkenndara og þyngra en lagið á undan. Titill lagsins vísun í skáldsögu og texti vísar í ljóð.
  4. Take it as it Comes
    Taktu því rólega. Engan asa. Libba og njódda eins og Nietzsche sagði.
  5. The End
    Þetta er svo mikið endalag að það hefði eiginlega þurft að vera síðasta lag á síðustu plötu þeirra.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top