Afmælisplata #21: Eagles – Hotel California

Veit ekki útgáfuár – Discogs: €15.00

Hotel California er 49 ára í dag!

Það er ekki langt síðan ég heyrði þessa plötu í fyrsta skipti í heild sinni og þekkti þá sjö af níu lögum plötunnar. Flott plata!

Hlið One
  1. Hotel California
    Eflaust einhverjir sem kannast við þetta lag. Hér er m.a. fjallað um öfgar bandarískrar menningar og ójafnvægið á milli listarinnar og viðskipta.
  2. New Kid in Town
    Hljómsveit verður vinsæl, framkoma í garð þeirra breytist en með tímanum dvínar þetta og aðrir verða vinsælli.
  3. Life in the Fast Lane
    Að lifa hættulega. Mér finnst þessi titill meira í anda Motörhead.
  4. Wasted Time
    Þeir enda fyrri hlið á sambandsslitum.
Hlið Two
  1. Wasted Time (Reprise)
    Þeir byrja seinni hlið á smá strengjum sem er einhvers konar tilfinningaþrungið framhald af lokalagi fyrri hliðar.
  2. Victim of Love
    Þetta var tekið upp “live” í stúdíóinu segja þeir, fyrir utan söng. Umboðsmaðurinn var svo í hádegismat þegar söngurinn var tekinn upp.
  3. Pretty Maids All in a Row
    Annað af tveimur lögum sem ég þekkti ekki í fyrsta rennsli. Gamlir vinir eða elskhugar að hittast.
  4. Try and Love Again
    Hitt sem ég þekkti ekki. Ástarsorg.
  5. The Last Resort
    Reynið að rugla þessu ekki saman við Papa Roach lagið.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top