
Með vottorð í leikfimi er 37 ára í dag!
Líkt og með margar íslenskar plötur, þá er ekki auðvelt að finna útgáfudag. Það var allavega kominn út dómur fyrir plötuna þennan dag. Platan kom út eitthvað aðeins fyrr…
Þessa plötu gaf Bjartmar mér og áritaði þegar við fengum hann til að koma og spila á Húnavöku 2009. Það held ég allavega.
Þrælskemmtilegir textar, sem að mestu eru samfélagsádeilur í góðlátlegu gríni.
Hlið 1
- Með vottorð í leikfimi
Uppvöxturinn, væntingar og nostalgía.
Ég er með unglingaból’ á nefin’ og ég næ henni ekki af! - Skáldin
Fínasta drykkjulag um skáld og menningarpostula. - Tólftommutöffarinn
Reyndi að átta mig á þessu lagi, en hamborgaratilboðið truflaði mig. - Bastían
Skemmtileg tenging við texta Davíð Oddsonar “við Reykjavíkurtjörn” - Sólarlanda
Rumpulýður sem kann ekki að haga sér.
Hlið 2
- Félagsmálafrík
Kaldhæðnislegur texti um par sem er að fjarlægjast hvort annað. - Ljúft en sárt
Kona með samviskubit eftir staffadjamm. - Ég er ekki frá því
Karl með samviskubit, eftirsjá og/eða þunglyndi. - Ljóð um þig
Þetta finnst mér fallegasta lagið hans. - Endurtekningalagið
Létt grín í lokin um Jón bróður

