
A Night at the Opera er 50 ára í dag!
Ein af nokkrum Queen plötum sem ég fékk úr gamla safninu hans pabba. Þessi plata er gjarnan talin vera meistaraverkið þeirra, en ég er alinn upp við fyrstu Greatest Hits og það var ekki fyrr en á þessi ári sem ég heyrði heila plötu með þeim. Platan var ekkert að grípa mig sérstaklega til að byrja með en hún vinnur hratt á.
Hlið 1
- Death on Two Legs (Dedicated to…)
Skot á fyrrum umboðsmann þeirra - Lazing on a Sunday Afternoon
Vika í lífi venjulegs manns í “vaudeville” stíl. Hljómar eins og það sé sungið í gjallarhorn. - I’m in Love with My Car
Roger Taylor er mikill bíladellukall. Hann læsti sig inn í skáp þar til Freddie Mercury samþykkti að hafa þetta á B-hliðinni af Bohemian Rhapsody. - You’re My Best Friend
John Deacon er mikill fjölskyldumaður. Lagið var samið um konu hans. - ’39
Geimvísindaskáldskapur frá stjarneðlisfræðingnum Brian May. - Sweet Lady
Erjur í sambandi konu og manns. Fyrstu tvö erindin frá sjónarhorni konunnar og síðasta erindið frá manninum. - Seaside Rendezvous
Aftur “vaudeville” stemmning.
Hlið 2
- The Prophet’s Songs
Innblásturinn sóttur úr draumi. Einhver svipuð pæling og syndaflóðið í biblíunni. - Love of My Life
Samið um Mary Austin. Þau voru í langtímasambandi, bjuggu saman í sjö ár og vinir til endaloka. Hún fékk mest af arfinum hans. - Good Company
Djassskotið lag um mann sem er kennt að meta vini sína, en giftist vinnunni og einangrast. - Bohemian Rhapsody
Oft talið eitt besta lag allra tíma, en það er ýmsar kenningar á lofti varðandi meiningu lagsin. Mest streymda lag 20. aldar, en það eru 40 lög frá 21. öld ofar skv. Wikipedia. - God Save the Queen
Breski þjóðsöngurinn á gítar.
