
Hypnotize er 20 ára í dag!
Síðasta plata System of a Down og seinni helmingur tvíleiksins Mezmerize/Hypnotize. Ég efast um þeir komi með aðra breiðskífu úr þessu. Frábær plata eins og allt frá þeim. Mér þótti aðeins skrítið hvað Daron var farinn að syngja mikið á þessum plötum. Það vandist fljótt og ég elska þessar raddanir milli þeirra.
Hlið A
- Attack
Byrjað með látum. Árásargirni valdasjúkra. - Dreaming
Byggt á ljóði söngvarans Serj Tankian. Ringulreið og margar raddir í einu með mismunandi texta í gangi, sem springur út í frábæru viðlagi. Brúin er svo gullfalleg. Alltaf langað að heyra þetta live, en held þeir hafi aldrei tekið þetta (í fullri lengd). Kannski vegna þess hve marglaga söngurinn er. - Kill Rock ‘N Roll
Tilvísun í kanínu sem Daron gítarleikar keyrði óvart yfir. - Hypnotize
Fjölmiðlar stýra umræðunni með sínum fréttaflutningi. - Stealing Society
Hnignun samfélagsins. - Tentative
Upplifun fórnarlamba á stríðshrjáðum svæðum. Serj upplifði sprengjuárásir sem barn í Líbanon.
Hlið B
- U-Fig
Stríðsáróðursgagnrýni - Holy Mountains
Fjallar um þjóðarmorðið á Armenum. Heilaga fjallið er Mt. Ararat, sem er mikilvægt tákn í armenskri menningu. - Vicinity of Obscenity
Augljóslega um bananaleirböku. - She’s Like Heroin
Vændi og eiturlyfjafíkn. - Lonely Day
Einmanaleikinn. - Soldier Side
Átakanlegt lag um unga menn sem fara í stríð og koma ekki aftur. Lagið endar svo eins og Mezmerize platan byrjar.
