Afmælisplata #16: Led Zeppelin – Untitled

2021 útgáfa – Discogs: €22.21

Fjórða plata Led Zeppelin er 54 ára í dag!

Af mörgum talin þeirra besta plata og ég tilheyri þeim hóp. Þar spilar inn í að ég þekkti 7 af 8 lögum plötunnar áður en ég heyrði hana í heild sinni í fyrsta skipti.

Hlið One
  1. Black Dog
    Nefnt eftir svörtum labrador sem var á ferli í kringum upptökustúdíóið. Gítarriff í 9/8 og trommur í 4/4.
  2. Rock and Roll
    Óður til rokksins. Innblásið af Little Richard.
  3. The Battle of Evermore
    Þjóðlagakennt með vísanir í Lord of the Rings. Eina lag Led Zeppelin með gestasöng. Sú sem á heiðurinn er Sandy Denny úr Fairport Convention.
  4. Stairway to Heaven
    Þekktasta lagið þeirra og oft talið eitt besta rokklag allra tíma. Ekki af ástæðulaus.
Hlið Two
  1. Misty Mountain Hop
    Titill er Lord of the Rings tilvísun. Lítið um það í textanum. Hljómsveitin ekki alveg í takt á 2:11 í laginu.
  2. Four Sticks
    Trommað með fjóra kjuða og takturinn 5/8 go 6/8. Eina lagið sem ég þekkti ekki við fyrsta rennsli eftir að ég keypti plötuna.
  3. Going to California
    Falleg ballaða um mann sem yfirgefur konu sína og fer til Kaliforníu í leit að hinni einu sönnu ást.
  4. When the Levee Breaks
    Blústökulag um Mississippi flóðið 1927. Trommurnar mikið ræddar og eftirminnilegar.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top