Afmælisplata #15: Rage Against the Machine – The Battle of Los Angeles

2018 útgáfa – Discogs: €22.46

The Battle of Los Angeles er 26 ára í dag!

Þriðja og síðasta plata Rage Against the Machine með frumsömdu efni. Hér er ekkert verið að syngja um hamingjuna og ástina, heldur er flestallt reiðilestur varðandi ýmis konar óréttlæti. Aðgerðasinnar með sterkar skoðanir, en flestir þekkja einungis boðskapinn “Fuck you, I won’t do what you tell me”. (ekki á þessari plötu)

Hlið One
  1. Testify
    Ég sá þá á Download Festival 2010, þar sem þeir opnuðu með þessu lagi. Ógleymanleg stund.
  2. Guerilla Radio
    Fjölmiðlar stjórna umræðunni og þjóna hagsmunum elítunnar.
  3. Calm Like a Bomb
    Fullt af myndlíkingum af mismunandi kimum samfélagsins og kraumandi reiði brýst út í viðlagi.
  4. Mic Check
    Baráttusöngur uppreisnarseggsins.
  5. Sleep Now in the Fire
    Auðvald/Græðgi. Tónlistarmyndband tekið upp á Wall Street.
  6. Born of a Broken Man
    Zack samdi texta um pabba sinn, sem var listamaður.
Hlið Two
  1. Born as Ghost
    Jaðarsettir hópar sem kerfið heldur ekki utan um.
  2. Maria
    Ólöglegur? innflytjandi sem lendir í ofbeldi og misnotkun.
  3. Voice of the Voiceless
    Tileinkað Mumia Abu-Jamal, meðlimi svörtu pardusanna sem situr inni fyrir morð á lögreglumanni. Það eru eitthvað umdeild réttarhöldin í kringum það mál.
  4. New Millenium Homes
    Platan kom út rétt fyrir aldamót. Ætli þeir hafi ekki viljað breytingar á nýrri öld?
  5. Ashes in the Fall
    Réttlætiskenndin sterk sem fyrr.
  6. War Within a Breath
    Stríðsákall til andspyrnuhreyfingarinnar.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top