Afmælisplata #17: Bjartmar Guðlaugsson – Það er puð að vera strákur

1989 útgáfa – Discogs: €19.93

Það er puð að vera strákur er 36 ára í dag!

Ég finn reyndar hvergi nákvæman útgáfudag, en þetta er nálgun byggð á gömlum blaðagreinum á timarit.is.
Frábær plata frá Bjartmari! Hann er flottur samfélagsrýnir og textarnir alltaf þrælskemmtilegir, ljóðrænir og hnyttnir.

Hlið 1 á umslagi, A á plötu
  1. Koks í lögfræði
    Glæsilegt opnunarlag um gúbba með pungapróf í sálfræði sem hefur nóg að garfa og nærist á káli.
  2. Ég teikna
    Lýsingar á myndum mannlífsins sem hann teiknar, párar, krassar o.s.frv.
  3. Mambó og rokk
    Einhver út á galeiðunni sem notar smokk (sé þess sérstaklega krafist af neytendum).
  4. Pínulítið peð
    Skáld í ástarhug og tregfullum pælingum um tilveru sína.
  5. Lúlla hverfur
    Lúlla vill ekkert með íslensku lopapeysugæjana hafa. Hún kýs strákana upp á velli og heitir nú Diana.
  6. Það er puð að vera strákur
    Frábært tiltillag, fullt af kaldhæðnislegum karlrembufrösum og ímyndum.
Hlið 2 á umslaði, B á plötu
  1. Stúlkan sú er elskar mig
    Hálfgerð andstæða við titillagið. Hér er töluverður undirlægjuháttur í ástarsambandi.
  2. Súrmjólk í hádeginu
    “Barnaleg” með viðlagi sem allir þekkja og frábært trall í lokin. Eiríkur Fjalar gestasöngvari.
  3. Bandormurinn
    Pabbi sem er orðinn þreyttur á syni sínum. “Gamli er í fýlu, hann er í fýlu út í sjálfan sig”. Spurning hvort pabbi sé Sumarliði?
  4. Babb í bátinn
    Lag um sambandsslit, samt kímni eins og Bjartmari er von og vísa.
  5. Ég sópa
    Skemmtilegur texti um dagsins amstur hjá einhverjum sem vinnur við að sópa bílaverkstæði.
  6. Viltu þá elska mig
    Hressandi lag með fallegum náttúrulýsingum í versum og svo spurningin “Viltu þá elska mig, fram á nótt/haust/vor?” í viðlagi.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top