Afmælisplata #14: Refused – The Shape of Punk to Come: A Chimerical Bombination in 12 Bursts

2022 útgáfa – Discogs: €26.04

The Shape of Punk to Come: A Chimerical Bombination in 12 Bursts er 27 ára í dag!

Stórkostleg plata sem náði ekki vinsældum fyrr en eftir að hljómsveitin var hætt. Pólitískir textar og tilraunakennd tónlist.
Það er ekki auðvelt að útskýra pælingarnar bakvið lögin í stuttu máli, en ég ætla samt að rembast eitthvað við það. Þessi plata er í miklu uppáhaldi hjá mér.

Hlið A
  1. Worms of the Senses / Faculties of the Skull
    Andkapitalísk stefnuyfirlýsing. Ú-á stórfyrirtæki. Glæsilegt opnunarlag!
  2. Liberation Frequency
    Grípandi viðlag sem minnir mig á Iceland Airwaves.
  3. The Deadly Rhythm
    Neysluhyggja í jazztakt.
Hlið B
  1. Summerholidays V.s Punkroutine
    Grípandi popppönk. Dansað á línunni á milli pönk og “sellout”.
  2. Bruitist Pome #5
    Millispil fyrir þekktasta lagið þeirra.
  3. New Noise
    Ég ákvað að kvikmyndin Crank væri stórkostleg í senunni sem þetta lag byrjaði.
Hlið C
  1. The Refused Party Program
    Smá röfl, svo mikil læti og endar í grilli.
  2. Protest Song ’68
    Mótmælasöngur, en ekki veit ég hvað 68 vísar í.
  3. Refused Are Fucking Dead
    Sjálfsspádómur um endalok hljómsveitarinnar?
Hlið D
  1. The Shape of Punk to Come
    Titillag plötunnar, en titill plötunnar er vísun í plötuna The Shape of Jazz to Come.
  2. Tannhäuser / Derivè
    Einhvers konar uppreisn gegn reglum og skipulagi.
  3. The Apollo Program Was a Hoax
    Svipað þema og annað á plötunni. Ú-á vondu kallana og við viljum breytingar!

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top