Afmælisplata #13: Led Zeppelin – Led Zeppelin II

2020 útgáfa – Discogs: €21.93

Led Zeppelin II er 56 ára í dag!

Önnur plata þeirra og sú nýjasta þegar þeir spiluðu í Laugardalshöll 1970.
Í fjöldamörg ár var þekking mín á lögum Led Zeppelin eingöngu bundin við safnplötuna Remasters.
Það er því takmörkuð fortíðarþrá sem fylgir hlustun þessarar plötu hjá mér, en þetta er engu að síður mjög áhrifamikið verk sem markaði stór spor í tónlistarsöguna.

Hlið One
  1. Whole Lotta Love
    Eitt af lögunum á Remasters. Þekktasta lag plötunnar. Gredda.
  2. What Is and What Should Never Be
    Sagan segir að Robert Plant fjalli hér um samband sitt við systur eiginkonu sinnar.
  3. The Lemon Song
    Gamal blúsefni héðan og þaðan. Þeir voru svolítið að fá lánað.
  4. Thank You
    Robert Plant skrifaði þennan fallega texta til þáverandi eiginkonu sinnar.
Hlið Two
  1. Heartbreaker
    Næsta Remasters lag. Stórkostlegt gítarriff. Ástarsorg.
  2. Living Loving Maid (She’s Just a Woman)
    Internetið segir að þetta sé um uppáþrengjandi grúppíu.
  3. Ramble On
    Þriðja og síðasta Remasters lagið. Vísanir í Hringadróttinssögu. Mark Gormley straumar.
  4. Moby Dick
    Hljóðfæraleikur og mjög þekkt trommusóló.
  5. Bring It on Home
    Lagið byrjar og endar í munnhörpublús, en skipt yfir í rokkgír í miðju lagi. Eitt af lögunum sem þeir fengu að láni.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top