Afmælisplata #12: Korn – Life is Peachy

2015 útgáfa – Discogs: €28.38

Life is Peachy er 29 ára í dag!

Dimm og þung tónlist með óþægilega og tilfinningaþrungna texta.
Angist er lýsingarorð sem skilgreinir Korn nokkuð vel, en þessi plata er mögulega þeirra angistarfyllsta

Hlið 1
  1. Twist
    Opna plötuna á léttum snúning.
  2. Chi
    Lag nefnt eftir fyrrum bassaleikara deftones, Chi Cheng. Blessuð sé minning hans.
  3. Lost
    Fínt lag sem fjallar mögulega um að missa samband við góðan vin.
  4. Swallow
    Svolítið undarlegt flæði í þessu lagi. Textinn kemur inn á vanlíðan eins og svo oft.
  5. Porno Creep
    Slepjulegt perramillispil. Fín stemmning.
  6. Good God
    Drottin minn dýri! Erfiður viðskilnaður við vin eða maka. Eitt af betri lögum plötunnar.
  7. Mr. Rogers
    Drungaleg, hæg uppbygging sem springur út í lokin. Vanmetið “deep cut”.
Hlið 2
  1. K@#*%!
    Blótsyrðaflaumur. Veit ekki hvort pælingin sé eitthvað dýpri.
  2. No Place to Hide
    Einn af hápunktum plötunnar. Ekki veit ég hverju hann er að reyna að koma sér undan.
  3. Wicked
    Ábreiða af Ice Cube lagi. Chino úr deftones gestasöngvari.
  4. A.D.I.D.A.S.
    Skammstöfun fyrir All Day I Dream About Sex. Klám- og/eða kynlífsfíkn? Kannski þekktasta lag plötunnar.
  5. Lowrider
    Önnur ábreiða. Smá sprell sem Head syngur.
  6. Ass Itch
    Ég hugsa alltaf um ritstíflu, en líklega er hann að grínast með eða pirra sig á að allir textarnir hans fjalla um vandamál. Léttasta lag plötunnar.
  7. Kill You
    Verulega brenglað samband við stjúpmóður. Tilfinningarnar bera hann ofurliði. Magnaður endir.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top