
Hráefni
- Olía, 2 msk
- Parmesanfylltar bratwurst pylsur, 600 g
- Beikon, 200 g
- Egg, 4 stk
- Þurrkuð basilika, 1 tsk
- Pipar, 2 tsk
- Vatn, 400 ml
- Grjón, 200 ml
- Salt, 1 tsk
- Paprika, 1 stk
- Hnúðkálslauf, 3 stk
- Hvítar baunir í dós, 400 g
- Graslaukur, 15 g
- Kassavamjöl, eftir smekk
Undirbúningur
Grjón
- Mæla 200 ml grjón og setja í skál.
- Mæla 400 ml af vatni, setja í pott ásamt 1 tsk salti.
Virado
- Hræra saman í skál 4 stk egg, 2 tsk pipar og 1 tsk þurrkuð basilika.
- Hella baunum úr einni dós í sigti, skola og láta standa.
- Skera 1 stk papriku í litla bita, saxa 3 lauf af hnúðkáli og 15 g af graslauk. Blanda papriku, graslauk og hnúðkálslaufum saman í skál.
- Skera 600 g pylsur og 200 g beikon í litla bita.
Aðferð
Grjón
- Sjóða saltað vatn á hæstu stillingu.
- Lækka í lágan hita og setja grjón út í. Malla undir loki í 10 mínútur.
- Slökkva á hellu, en láta stand undir loki í 10 mínútur í viðbót.
Virado
- Hita 2 msk olíu á háum hita og svo steikja pylsur og beikon þar til orðið stökk og vel eldað.
- Bæta eggjaskálinni á pönnuna og hræra saman við kjöt á meðan egginn eldast. Lækka í miðlungshita.
- Baunirnar úr sigtinu á pönnuna og hita þær í gegn.
- Papriku, hnúðkálslauf og graslaukur hrært út í og gefa þessu örfáar mínútur.
Virado og grjón hellt saman í stóra skál og hrært saman. Borið á borð, ásamt kassavamjöli til að strá yfir – fyrir fólk sem vill aðeins verri mat.
