
Brottför kl. 8 er 47 ára í dag!
Þriðja plata þeirra inniheldur eitt lag sem ber höfuð og herðar yfir hin, en restin af plötunni er fín þó ég hafi ekki gefið þessari plötu sérstaklega mikinn tíma. Heilt yfir er þetta prýðileg breiðskífa.
Mig grunar að þetta eintak mitt komi upphaflega úr safni móður minnar.
Hlið A á bakhlið (1 á plötu)
- Aldrei of seint
Áminning um nýta tímann sem maður hefur og ekki vera að fresta hlutunum. Sérstaklega í samhengi ástarinnar. - Ferjumaðurinn
Lag um hinn óhjákvæmilega dauða. Fegurð og samþykki í þessu. - Gallar
Ekki þykjast lifa fullkomnu lífi, heldur viðurkenndu galla þína og njóttu lífsins. Eitthvað svoleiðis. - Álfarnir
Þjóðlegt lag um að hitta álfa. - Gamli skólinn
Upprifjun á skólaárunum. Þrátt fyrir að mörgum finnist skólagangan löng og/eða leiðinleg, þá eru minningarnar oft hlýjar þegar maður hugsar til baka.
Hlið B á bakhlið (2 á plötu)
- Einhversstaðar einhvertíma aftur
Yfirburðalagið og löngu sígilt. Ljúfsár söknuður og fortíðarþrá. - Graði Rauður
Hestalag um pilt sem kynnist gæðing. Eitthvað kemur uppá svo hann endar á að tala um að gelda gæðinginn. - Í fjörunni
Dagdraumar í ró og kyrrð fjörunnar. - Brottför kl. 8
Titillagið er þægilegur lyftublúsinstrumental. - Guðsblús
Leitin að innri frið
