
Hráefni
- Smjör, 2 msk
- Svínalund, 600 g
- Laukur, 2 stk
- Hvítlaukur, 1 rif
- Linsubaunir í dós, 780 g
- Spínat, 100 g
- Kartöflur, 800 g
- Olía, 2 msk
- Kartöflukrydd, 3 tsk
- Rjómi, 250 ml
- Kjúklingakraftur, 2 tsk
- Sterkt grófkorna sinnep, 1 tsk
- Milt paprikukrydd, 1 tsk
Undirbúningur
Kartöflur
- 800 g kartöflur skornar í fernt eða átta bita og velt upp úr 2 msk olíu og 3 tsk kartöflukryddi.
Linsubaunir
- 780 g linsubaunir skolaðar og settar í skál.
Laukar
- 2 laukar saxaðir og 1 hvítlauksrif pressað saman í skál.
Sósa
- Blanda saman í pott 100 ml af vatni, 250 ml rjóma, 2 tsk kjúklingakraft, 1 tsk sterku grófkorna sinnepi og 1 tsk sætu paprikukryddi.
Forhita ofn í 220° undir/yfir eða 200° blástur.
Aðferð
Svínalund, linsubaunir og grænmeti
- Bræða 2 msk af smjöri á háum hita og steikja svínalund á öllum hliðum þar til hún fær dökka og stökka húð.
- Svínalund inn í ofn þar til hún er elduð í gegn.
- Lækka í miðlungs lágan hita og steikja lauka þar til glær.
- Bæta linsubaunum og spínati út í. Malla þar til spínat fellur saman.
Kartöflur
- Kartöflur inn ofn eða air fryer í ca 25 mínútur.
Sósa
- Kveikja undir sósupotti á miðlungs hita. Hræra saman hráefnum og láta malla þar til sósan þykknar svolítið.
