Afmælisplata #26: Eagles of Death Metal – Peace, Love, Death Metal

Peace, Love, Death Metal er 22 ára í dag!

Ef þú þekkir þessa hljómsveit á annað borð, þá þekkir þú líklega bleika og bláa umslagið af geisladisknum og Spotify (sjá innfellda spilarann neðar).
Hér er á ferðinni hressandi, dansvænt, sveitt og sóðalegt bílskúrsrokk. Frábær plata sem kemur mér alltaf í stuð, en það er nánast óhjákvæmilegt að dilla sér svolítið við þennan kjána- og dónaskap.

Hlið Boogie
  1. I Only Want You
    Aðili vill aðeins líkamlegt samband, enga tilfinningalega nánd.
  2. Speaking in Tongues
    Löðrandi sveittur kynþokki. Uppáhaldslagið mitt með þeim.
  3. So Easy
    Áframhaldandi daður og kynferðisleg spenna.
  4. Flames Go Higher
    Hér er ástríðan sett fram í helvítis djöfullegum myndlíkingum.
  5. Bad Dream Mama
    Viðreynslan heldur áfram. Það vantar ekkert upp á sjálfsöryggið.
  6. English Girl
    Skipt um gír í texta. Ekki eins hispurslaus áræðni og í fyrri lögum. Bíltúr og rómantík.
  7. Stacks O’Money
    Sögumaður byrjar lagið með seðlabúnt en endar með ekkert í lok lags eftir vafasöm viðskipti.
Hlið Woogie
  1. Midnight Creeper
    Hin hliðin á plötunni byrjar á krúttlegu lagi um raðmorðingja sem læðist inn til fólks á meðan það sefur og sker á háls.
  2. Stuck in the Metal
    Ábreiða af laginu Stuck in the Middle með Stealers Wheel. Textanum er breytt aðeins á skemmtilegan hátt.
  3. Already Died
    Dekkra og þyngra en flest á plötunni. Melankóliskt lag um samband sem er lokið. Flutningurinn kemur þó í veg fyrir að þetta sé eitthvað dramatískt.
  4. Who’ll Kiss the Devil
    Einhverjir gætu haldið að hér sé verið að hygla djöflinum. Ég held að þetta sé nú bara kómísk sjálfumgleði forsprakka sveitarinnar Jesse “The Devil” Hughes.
  5. Whorehoppin’
    Hér erum við aftur komin í kynferðislega spennu, perraskap og karlagrobb í bland við eyðimerkurbíltúra.
  6. San Berdoo Sunburn
    Hugljúft sing-along um frelsið á vegin. Roadtrip fílingur.
  7. Wastin’ My Time
    Tímaeyðsla. Tímanum er reyndar vel varið í að hlusta á þetta lag, enda með kúabjöllum.
  8. Miss Alissa
    Ágengur kvennabósi gerir sitt besta til að heilla frú Alissu.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top