Afmælisplata #57: Pink Floyd – Wish You Were Here

Útgáfuár óþekkt – Discogs: €15.55

Wish You Were Here er 51 árs í dag!

Vínyllinn minn er þýskur og Discogs færslan er besta nálgun sem ég fann, því umslag og nærbuxur er ítalskt. Ég á semsagt þýska plötu í ítölsku umslagi.
Þetta er stórkostleg plata sem byrjar og endar á “sama” lagi, með þremur frábærum lögum á milli.

Hlið 1
  1. Shine On You Crazy Diamond (Parts 1-5)
    Augljóslega tileinkað Syd Barret, einn af stofnendum og fyrrum söngvara Pink Floyd. Það er þekkt saga um að hann hafi mætt óvænt og stúdíó þegar þeir voru að taka upp plötuna, en hann var svo breyttur í útliti að þeir þekktu hann ekki til að byrja með.
  2. Welcome to the Machine
    Ádeila á tónlistarbransann og/eða distópísk framtíðarsýn.
Hlið 2
  1. Have a Cigar
    Önnur tónlistarbransaádeila. Línan “which one’s Pink” á að hafa komið frá plötuútgefanda sem hélt að einhver í bandinu héti Pink.
    Roy Harper syngur í þessu lagi, en Led Zeppelin taka ofan fyrir honum á þriðju plötu sinni sem ég mun fjalla um síðar.
  2. Wish You Were Here
    Titillagið er virkilega notalegt og þeirra allra besta lag. Richard Wright hljómborðsleikar sveitarinnar hóstar á fertugustu og annarri sekúndu. Það varð honum hvatning til að hætta að reykja.
  3. Shine On You Crazy Diamond (Parts 6-9)
    Lokalagið er áframhald af opnunarlaginu.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top