
Í plötubúðinni Musicland hittast tónlistarunnendur reglulega til að hlusta á og ræða tónlist. Þema er ákveðið fyrir hvert kvöld, en fyrirkomulagið er þannig að þáttakandi kynnir inn lag sem er spilað. Þegar laginu lýkur kynnir næsti þáttakandi sitt lag og þannig gengur þetta koll af kolli, með einhverjum umræðum inn á milli.
Gjarnan eru þáttakendur með plötur með sér og á meðan lagið þeirra ómar, er eintakið látið ganga. Yfirleitt náum við 2-3 umferðum, en það fer eftir fjölda þáttakenda og lengd laga.Ég undirbý mig með forvali á lögum af plötum úr safninu mínu sem passa í þema kvöldsins. Ég tek svo lokaákvörðun varðandi íslensk lög og þýði mögulega texta yfir á þýsku fyrir áhugasama.
Ég mæti þó með allt forvalið á þemakvöldið og nái ég inn þriðja lagi, þá vel ég það miðað við stemmningu.
Freundschaft
Þemað var vinátta. Forvalið mitt leit svona út:
Á playlistann náðu:
- Mannakorn – Gamli góði vinur
- Flight of the Conchords – Friends
- Primus – Harold of the Rocks
