
Hráefni
- Kjúklingalundir, 800 g
- Ketjap Manis, 3 msk
- Sojasósa, 7 tsk
- Olía, 2 msk
- Skalottlaukur, 4 stk
- Hvítlaukur, 4 rif
- Grjón, 300 ml
- Vatn, 600 ml
- Hvítur pipar, ½ tsk
- Gúrka, 1 stk
- Tómastar, 4 stk
- Sambal Oelek, eftir smekk
- Steiktur laukur, eftir smekk
- Egg, 4 stk
Undirbúningur
Grjón
- Sjóða 600 ml af vatni með 2 tsk salti á fullum styrk. Lækka í lægstu stillingu og láta 300 ml grjón malla í 10 mínútur undir loki.
- Slökkva undir og láta standa áfram í 10 mínútur undir loki.
- Henda þessu í skál, losa aðeins um þetta og í ísskáp. Verður notað kalt.
Kjúklingur
- Saxa 4 stk skallotlauk í skál.
- Afhýða 4 hvítlauksrif.
- Skera 800 g af kjúklingalundum í fjóra bita hverja.
- Velta lundunum upp úr 1 msk ketjap manis og 1 tsk sojasósu í skál.
- Hræra saman 2 msk ketjap manis og 2 msk sojasósu í bolla.
Aukaefni
- Skera 4 stk tómata í fernt hvern.
- Sneiða 1 stk gúrku.
Aðferð
Kjúklingur
- Hita 2 msk olíu á pönnu við miðlungsháan hita.
- Steikja skallotlauk í 2 mínútur og svo pressa hvítlauksrif út í og blanda saman.
- Færa laukinn til hliðar á pönnunni, steikja kjúkling þar til hann brúnast og blanda þessu svo saman.
- Nú fara köldu grjónin á pönnuna ásamt ketjap manis og sojasósu blöndunni. Þetta er látið malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Strá yfir ½ tsk af hvítum pipar og hræra.
- Tæma af pönnu á fjóra diska.
Aukaefni
- Spæla 4 stk egg á pönnunni.
Egg yfir kjúkling og grjón, svo gúrkur og tómatar til hliðar, strá yfir steiktum lauk og sambal oelek ef þetta á að vera sterkara.
