
Frizzle Fry er 36 ára í dag!
Það er algengt að sjá dagsetninguna 7. febrúar sem útgáfudag fyrstu breiðskífu Primus, en mér sýnist það mjög ólíklegt miðað við samtímaheimildir. Þeir hafa einstakan hljóðheim og þetta er frábær plata sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Todd Huth samdi flestar gítarmelódíurnar, en Ler LaLonde hafði tekið við gítarnum þegar kom að upptökum plötunnar.
Hlið A
- To Defy the Laws of Tradition
Lagið byrjar á tilvísun í Rush. Góðlátlegt grín um kjarkinn sem þarf til að ögra hefðum. - Groundhog’s Day
Klassík sem var notuð í geimverumyndbandi fjöllistahópsins Burger Beer - Too Many Puppies
Ef mér skjátlast ekki, þá flutti hljómsveitin Schneider þetta á einhverjum viðburði í MA, við fínar undirtektir. Fyrsta lagið sem Les Claypool samdi. - Mr. Knowitall
Svokallaður Besserwisser á þýsku. Textabrotið “perfection is my middle name, and whatever rhymes with eloquent” þykir mér mjög gott í þessu samhengi. - Frizzle Fry
Internetið segir að titillagið sé um sýrutripp. Ég ætla ekki að véfengja það. - John the Fisherman
Les Claypool er mikill veiðimaður. Þetta er fyrsti singúll og lagið er í einhverjum Guitar Hero leik. Kirk Hammet kemur við sögu í tónlistarmyndbandinu. - You Can’t Kill Michael Malloy
Ég flutti fyrirlestur um þennan ótrúlega mann. Það var í enskutíma minnir mig. Ótrúleg saga!
Hlið B
- The Toys Go Winding Down
Breytt útgáfa af laginu Toyz 1988, sem Sausage gaf út síðar. - Pudding Time
Ef ég skil rétt, þá er umfjöllunarefnið neysluhyggja. - Sathington Willoughby
Stutt kynning á Sathington Willoughby sem þeir kynna svo betur á Brown Album. - Spegetti Western
Iðjuleysingjar að vaka fram eftir, reykja gras, horfa á sjónvarp og eitthvað að slæpast. Það skortir þó enga framtakssemi í hljóðfæraleikinn. - Harold of the Rocks
Hressandi og hnyttinn texti um krakk fíkil. Endir lagsins er stórkostlegur. - To Defy
Platan “klárast” með vísun í upphafslagið. - Hello Skinny/Constantinople
Þetta er bónuslag á seinni útgáfum plötunnar. Ábreiða af tveimur lögum með the Residents.
