🇮🇳 Chicken Biryani

Innblástur: BBC Good Food

Hráefni

  • Grjón, 300 ml
  • Smjör, 25 g
  • Laukur, 1 stk
  • Kanelstöng, 1 stk
  • Kardemommubelgir, 3 stk
  • Lárviðarlauf, 1 stk
  • Kóriander, 15 g
  • Kjúklingakraftur, 2 tsk
  • Rúsinur, 85 g
  • Túrmerik, 1 tsk
  • Madras Karrímauk, 4 msk
  • Vatn, 800 ml
  • Kjúklingabringur, 600 g

Undirbúningur

  • Láta 300 ml af grjónum liggja í heitu vatni
  • Skera 1 stk lauk í þunnar sneiðar og merja þrjá kardemommubelgi. Setja saman í skál ásamt einni kanelstöng og lárviðarlaufi.
  • Saxa 15 g af kóríander
  • Vigta 85 g af rúsínum í skál.
  • Hræra 2 tsk af kjúklingakraft út í 800 ml af heitu vatni.
  • Skera 600 g af kjúklingabringum í stóra bita.
  • Skola grjónin sem voru í heita vatninu og láta standa í sigti.

Aðferð

  1. Bræða 25 g af smjöri á pönnu við miðlungshita og steikja lauk, kardemommu, kanel og lárviðarlaufi í 10 mínútur.
  2. Hækka í miðlungsháan hita, strá 1 tsk af túrmerik og hræra saman. Næst fer kjúklingurinn á pönnuna ásamt 4 msk af karrímaukinu. Leyfa þessu að malla í 5 mínútur.
  3. Nú fara grjónin, rúsinurnar og kjúklingakrafturinn á pönnuna og lok á pönnuna.
  4. Þegar fer að bullsjóða, þá lækka í lágan hita og leyfa að malla í 5 mínutur í viðbót.
  5. Slökkva undir pönnu, en láta standa áfram undir loki í 10 mínútur.
  6. Lok af pönnu og hræra kóríander saman við.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top