
Hráefni
- Risottogrjón, 300 g
- Vatn, 1 L
- Sveppir, 250 g
- Perur, 2 stk
- Graslaukur, 10 g
- Parmesan, 60 g
- Laukur, 1 stk
- Kjúklingakraftur, 1 msk
- Beikon, 200 g
- Pekanhnetur, 20 g
- Hvítlaukur, 1 rif
- Salt, 2 tsk
- Pipar, 2 tsk
- Olía, 1 msk
Undirbúningur
- Gera kjúklingasoð úr 1 L af vatni og 1 msk af kjúklingakrafti
- Mæla 300 g af risotta grjónum í skál
- Saxa einn lauk og pressa eitt hvítlauksrif
- Sneiða 250 g af sveppum
- Sneiða tvær perur með eplaskera
- Saxa graslauk
Aðferð
Pottur (Grjón)
- Hita 1 msk af olíu á miðlungsháum hita og svo glæra lauk og hvítlauk
- Hræra grjónum út í og leyfa þeim að “svitna” í ca mínútu
- Hella 150-200 ml af kjúklingasoði í pottinn í einu og leyfa að sjóða þar til grjónin þykkna þannig að nánast enginn vökvi er eftir. Endurtaka þetta þar til soðið klárast, ca 20-30 mínútur.
- Sveppum úr skrefi 2 hér að neðan er blandað við og svo 60 g af parmesan
Panna (Annað)
- Steikja 200 g af beikoni á miðlungsháum hita og svo leggja til hliðar á pappír
- Steikja sveppina þar til þeir taka lit. Hræra 2 tsk salt og 2 tsk pipar saman við og svo blanda við grjónin þegar þau eru klár
- Steikja að lokum perubitana og pekanhnetur upp úr 1 msk af sykri í nokkrar mínútur.
