
Hráefni
- Nautamínútusteik, 640 g
- Olía, 2 msk
- Rauð paprika, 1 stk
- Græn paprika, 1 stk
- Vorlaukur, 2 stk
- Hvítlaukur, 3 rif
- Engifer, 1 tsk
- Sojasósa, 50 ml
- Vatn, 450 ml
- Grjón, 200 ml
- Sykur, 1 msk
- Kartöflusterkja, 1 msk
- Salt, 3 tsk
- Pipar, 2 tsk
Undirbúningur
Nautakjöt
- Skera eina rauða og eina græna papriku í strimla og svo strimlana í tvennt. Setja í skál.
- Saxa tvo vorlauka og bæta í skálina.
- Afhýða þrjú hvítlauksrif og saxa 1 tsk af fersku engiferi. Leggja saman til hliðar.
- Skera 640 grömm af nautamínútusteik í strimla þversum. Velta upp úr 1 tsk af salti og 2 tsk pipar.
- Blanda 50 ml af sojasósu og 50 ml af vatni í mæliglas. Bæta við 1 msk af sykri og 1 msk kartöflusterkju og hræra vel saman.
Grjón
- Skola 200 ml af grjónum
- Setja 400 ml af vatni í pott ásamt 2 tsk af salti
Aðferð
Nautakjöt
- Hita 1 msk af olíu á pönnu við miðlungshita
- Steikja paprikur og lauk þar til mýkist. Taka það svo af pönnunni og leggja til hliðar
- Önnur msk af olíu á pönnuna og hækka í háan hita.
- Steikja kjötið snögglega svo það brúnast.
- Hræra hvítlauk og engifer saman við
- Grænmetið fer svo aftur á pönnuna og hræra saman
- Að lokum fer sojasósublandan á pönnuni. Leyfa sósunni að þykkna aðeins
Grjón
- Kveikja undir grjónapotti á hæsta hita
- Þegar suðu er náð er lækkað í lágan hita og grjón út í og lok yfir
- Leyfa að malla undir loki í 10 mínútur, þá slökkva á hellu en leyfa að hvíla í 10 mínútur í viðbót undir loki
