🇨🇲 Poulet DG

Innblástur: African Bites

Hráefni

  • Laukur, 2 stk
  • Steinselja, 40 g
  • Sellerí, 50 g
  • Hvítlaukur, 5 rif
  • Tómatur, 1 stk
  • Strengjabaunir, 200 g
  • Gulrætur, 200 g
  • Gul paprika, 1 stk
  • Græn paprika, 1 stk
  • Kjúklingalæri, 1200 g
  • Kjúklingaleggir, 600 g
  • Salt, 1 msk
  • Pipar, 1,5 msk
  • Olía, 150 ml
  • Kjúklingateningur, 1 stk
  • Matbanani, 4 stk

Undirbúningur

Matbananar

  • Skera 4 stk matbanana í 2 cm sneiðar

Mauk

  • Saxa gróft, 2 stk lauk, 40 g steinselju, 50 g sellerí, 1 stk tómat og setja í blandara ásamt 5 hvítlauksrifjum

Kjúklingur

  • Velta bitum upp úr 1 msk salti og 1 ½ msk pipar

Grænmeti

  • Skera 200 g af gulrótum í sneiðar, 200 g af strengjabaunum í fernt og saman í skál
  • Sneiða eina græna og eina gula papriku og saman á disk

Aðferð

Kjúklingur

  1. Hita 75 ml olíu á miðlungsháum hita og steikja bita á öllum hliðum þar til þeir brúnast, svo leggja til hliðar. Í skömmtum ef þess þarf.

Matbananar

  1. Hita 75 ml olíu á pönnu á miðlungsháum hita og steikja bita á hvorri hlið þar til þeir brúnast.
  2. Leggja til hliðar og þerra á pappír.

Mauk

  1. Þegar kjúklingurinn er brúnaður, þá skrapa botn og mauk fer í steypujárnspottinn. Malla í 10 mínútur ásamt kjúklingatening.
  2. Setja kjúklingin út í, lækka í miðlungslágan hita og lok yfir. Leyfa að malla í hálftíma.
  3. Bæta gulrótum og strengjabaunum út í og malla í nokkrar mínútur í viðbót.
  4. Slökkva undir og hræra saman paprikubitum.
  5. Þegar er borið fram, þá hræra matbönunum saman við.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top