🇸🇱 Maníoklaufakássa með hrísgrjónum

Innblástur: International Cuisine

Hráefni

  • Nautagúllas, 500 g
  • Olía, 1 msk
  • Laukur, 2 stk
  • Vegeta, 4 tsk
  • Eggaldin, 2 stk
  • Þurrkaður ferskvatnskrabbi, 3 msk
  • Hnetusmjör, 5 msk
  • Pálmaolía, 150 ml
  • Fínsöxuð maníoklauf, 500 g
  • Chiliflögur, 1 msk
  • Hrísgrjón, 200 ml

Undirbúningur

Nautagúllas

  • Blanda 500 g nautagúllas, 1 msk saxaður laukur, 1 tsk vegeta, 1 msk repjuolía, 70 ml vatn og 1 tsk salt í pott.

Maníoklaufakássa

  • Setja í blandara 2 stk afhýdd og gróft skorin eggaldin, afgangur af söxuðum lauk, 3 msk þurrkaður ferskvatnskrabbi, 1 msk chiliflögur og 140 ml vatn. Mauka vel.

Hrísgrjón

  • 400 ml vatn og 2 tsk vatn í pott

Aðferð

Nautagúllas

  1. Kveikja undir potti á háum hita. Þegar fer að sjóða, þá lækka í miðlungslágan hita og hræra reglulega. Malla í ca 25 mínútur.

Maníoklaufakássa

  1. Henda mauk úr blandara í pott ásamt vegata, 440 ml vatni, hnetusmjöri og pálmaolíu. Byrja á háum hita, en lækka í miðlungslágan hita þegar suða kemur upp. Malla í hálftíma og hræra í af og til.
  2. Setja maníoklauf og vökva úr nautagúllaspotti út í og malla áfram í 20 mínútur.
  3. Bæta nautagúllas út í og gefa þessu 10 mínútur í viðbót.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top