
Hráefni
- Lax, 600 g
- Vorlaukur, 1 stk
- Lárpera, 1 stk
- Lime, 2 stk
- Chiafræ, 2 tsk
- Grjón, 200 ml
- Vatn, 400 ml
- Sojasósa, 200 ml
- Hunang, 2 msk
- Spínat, 100 g
- Salt, 3 tsk
- Pipar, 1 tsk
- Ólívuolía, 4 msk
Undirbúningur
Lax, sojasósa og grænmeti
- Skera 1 stk vorlauk í þunnar sneiðar, aðgreina hvítt frá grænu
- Skera 2 stk lime í fernt hvort, samtals átta bitar.
- Sneiða eina lárperu
- Hræra 2 msk af hunangi við 200 ml af sojasósu
Grjón
- 400 ml af vatni og 2 tsk af salti í grjónapott
Aðferð
Lax, sojasósa og grænmeti
- Hita 2 msk af ólívuolíu á pönnu á miðlungshita
- Steikja hvíta hlutann af vorlauknum í nokkrar mínútur
- Bæta við 100 g af spínati, krydda með 1 tsk pipar og 1 tsk salti og elda þar til það fellur saman
- Tæma spínat og lauk úr pönnu í skál og hita aftur 2 msk af ólívuolíu á miðlungsháum hita. Kreista smá lime yfir.
- Steikja fisk á roðinu í 4 mínútur
- Snúa og steikja í 2 mínútur að ofan
- Snúa laxinum aftur og kreista smá lime yfir. Hella svo sojasósunni með hunanginu yfir, strá 2 tsk af chiafræum yfir fiskinn og láta eldast undir loki í stutta stund
Grjón
- Ná upp suðu á hæsta hita
- Þegar suðu er náð, þá lækka í lágan hita og setja grjón í pottinn með loki yfir og malla í 10 mínútur
- Slökkva undir hellu en leyfa pottinum að standa í 10 mínútur í viðbót
Bera fram með lárperusneiðar yfir fisknum, græna hlutann af vorlauknum stráð yfir grjónin og kreista afgang af lime yfir það sem þú vilt.
