
Hráefni
- Lax, 1200 g – (4x300g flök)
- Hvítlaukur, 3 rif
- Capers, 2 msk
- Sítróna, 1 stk
- Kirsuberjatómatar, 300 g
- Basilika, 25 g
- Ólívuolía, 60 ml
- Grjón, 200 ml
- Vatn, 2 lítrar
- Borðsalt, 4 tsk
- Sjávarsalt, 2 tsk
- Pipar, 2 tsk
- Brokkolí, 1 stk
- Olía, 2 msk
Undirbúningur
Lax
- Forhita ofn í 180° undir yfir
- Strá 2 tsk af sjávarsalti og 2 tsk af pipar yfir fiskiflökin fjögur á bökunarpappír á ofnplötu
Sósa
- Rífa börk af einni sítrónu og kreista safann úr
- Afhýða 3 rif hvítlauk og pressa í skál ásamt 2 msk af maukuðu capers og sítrónuberkinum
- Skera 300 g af kirsuberjatómötum í tvennt
- Saxa 25 g af basiliku
Grjón
- Setja 400 g af vatni í pott ásamt 1 tsk af salti
Brokkolí
- Skera brokkolí í bita
Aðferð
Lax
- Inn í ofn í ca korter
Sósa
- Hita olíu á miðlungshita og svo bæta við hvítlauk, capers og sítrónberki og malla í 2 mínútur
- Bæta við tómötunum, ásamt 1 tsk af borðsalti og sítrónusafanum.
- Þegar tómatarnir eru orðnir mjúkir er basilikunni hrært saman við og potturinn tekinn af hellunni.
Grjón
- 400 g af vatni í pott ásamt 1 tsk af salti og ná upp suðu á hæsta hita
- Lækka í lágan hita, bæta grjónunum út í og malla undir loki í 10 mínútur
- Slökkva undir og leyfa að hvíla undir loki í 10 mínútur í viðbót
Brokkolí
- 1600 ml af vatni í pott ásamt 2 tsk af salti og ná upp suðu á hæsta hita.
- Lækka í miðlungsháan hita, setja brokkolí út í og leyfa að sjóða í 7 mínútur
