Lasagne með kotasælu

Innblástur: Ljúfmeti og lekkerheit

Hráefni

  • Smjör, 40 g
  • Laukur, 3 stk
  • Nautahakk, 800 g
  • Pastasósa, 400 ml
  • Sýrður rjómi, 200 g
  • Grænmetiskraftur, 1 msk
  • Kotasæla, 300 g
  • Lasagneplötur, 6 stk
  • Rifinn mozzarella, 250 g
  • Salt, 1 tsk
  • Pipar, 1 tsk

Undirbúningur

  • Saxa 3 stk af lauk
  • Taka kotasæluna úr kæli svo hún mýkist upp
  • Forhita ofn í 200° undir/yfir

Aðferð

  1. Bræða smjör á miðlungs hita o g steikja lauk þar til hann glærist.
  2. Hækka hita í miðlungs háan og brúna nautahakki.
  3. Lækka hita í miðlungs lágan og blanda pastasósu, creme fraiche og 1 msk grænmetiskraft út í. Leyfa að malla í a.m.k. 10 mínútur. Því lengur, því betra.
  4. Hella þriðjung af kjötsósunni í eldfast mót, svo þrjár lasagne plötur yfir kjötsósuna og helmingur kotasælunnar yfir lasagne plöturnar.
  5. Annar þriðjungur af kjötsósu yfir kotasæluna, næstu þrjár lasagna plötur þar yfir afgangur af kotasælu.
  6. Rest af kjötsósu yfir kotasæluna, strá rifnum mozzarella yfir allt saman og inn í ofn í ca 20 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top