
Hráefni
- Smjör, 3 msk
- Púrrulaukur, 2 stk
- Gulrætur, 4 stk
- Kjúklingalundir, 600 g
- Kjúklingakraftur, 2 tsk
- Sterkt paprikukrydd, 1 tsk
- Milt paprikukrydd, 1 tsk
- Hvítlauksduft, ½ tsk
- Laukduft, ½ tsk
- Hvítur pipar, ½ tsk
- Salt, 3 ½ tsk
- Grjón, 300 g
- Rjómi, 250 ml
- Tómatpúrra, 140 g
- Steinselja, 10 g
Undirbúningur
Grjón
- 600 ml vatn og 3 tsk salt í pott.
- Saxa steinselju.
Kjúklingur og grænmeti
- Skera kjúkling í 2 cm bita, svo púrrulauk og gulrætur í tvennt og litla hálfmána. Blanda öllu saman í skál.
Kryddblanda
- Blanda 2 tsk af kjúklingakrafti, 1 tsk af sterku paprikukryddi, 1 tsk af mildu paprikukryddi, ½ tsk hvílauksdufti, ½ tsk laukdufti, ½ tsk hvítum pipar og ½ tsk salti í lítinn bolla.
Aðferð
Grjón
- Sjóða 600 ml af vatni.
- Lækka í lágan hita, bæta 300 g af grjónum út í og malla undir loki í 10 mínútur.
- Slökkva under hellu en láta standa áfram með lokið á í 10 mínútur.
- Hræra steinselju út í.
Kjúklingur og grænmeti
- Bræða smjör á háum hita og steikja kjúkling og grænmeti í nokkrar mínútur.
- Tómatmauk og kryddblanda sett út í og látið krauma í örfáar mínútur.
- Lækka í miðlungs hita, bæta rjóma og 200 ml vatni út í. Malla undir loki þar til tilbúið.
