Kjúklingasalat með kjúklingabaunum og beikoni

Hráefni

  • Kjúklingalundir, 400 g
  • Grísk jógúrt, 150 g (ca 10 msk)
  • Sinnep, 2 tsk
  • Salt, 1 tsk
  • Pipar, 1 tsk
  • Kjúklingabaunir, 1 dós
  • Beikonkurl, 200 g
  • Romasalathjörtu, 2 stk
  • Tómatur, 1 stk
  • Aioli, 1 tsk
  • Worcestersósa, 1 tsk
  • Parmesanflögur, 20 g
  • Ólívuolía, 1 msk

Undirbúningur

  • Forhita ofn í 220° undir/yfir
  • Hræra saman í litla skál, 2 msk af grískri jógúrt ,1 tsk sinnep, ½ tsk salt og ½ tsk pipar
  • Skera 400 g af kjúklingalundum í litla bita og velta upp úr jógúrtblöndunni. Leyfa að marinerast.
  • Skola eina dós af kjúklingabaunum og svo blanda saman við 200 g af beikonkurl ásamt ½ tsk salt og ½ tsk pipar og dreifa úr þessu á bökunarpappír.
  • Skera 2 stk romasalathjörtu í strimla og 1 stk tómat í litla bita. Blanda þessu saman í stóra skál.
  • Hræra saman með töfrasprota: Afgang (8 msk) af grískri jógúrt, 1 tsk sinnep, 1 tsk aioli, 1 tsk worcestersósa og 10 g af parmesanflögum

Aðferð

  1. Setja kjúklingabauna og beikon blönduna í 220° heitan ofninn í 15-20 mínútur.
  2. Hita 1 msk af ólívuolíu á háum hita og steikja marineraða kjúklinginn þar til hann er klár.
  3. Þegar kjúklingabaunir og beikon er klárt, þá er því blandað við salat og tómata í stóru skálinni.
  4. Næst eru jógúrt, sinnep, aioli, worcester og parmesan sullið hrært saman við allt í stóru skálinni.
  5. Að lokum er kjúklingurinn blandaður við stóru skálina
  6. Borið fram með afgang af parmesanflögum

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top