Kjúklinganaggar og penne pasta í púrrulauksrjómasósu

Innblástur: Hello Fresh

Hráefni

  • Penne pasta, 500 g
  • Kjúklingalundir, 800 g
  • Púrrulaukur, 1 stk
  • Skalottlaukur, 2 stk
  • Graslaukur, 10 g
  • Rjómi, 250 ml
  • Parmesan, 40 g
  • Sterkt grófkorna sinnep, 20 g
  • Panko raspur, 150 g
  • Grænmetiskraftur, 2 tsk
  • Túrmerik, 1 tsk
  • Malaður kóriander, 1 tsk
  • Malað cumin, ½ tsk
  • Engiferduft, ¼ tsk
  • Kanill, ¼ tsk
  • Malað múskat, ¼ tsk
  • Salt, 6 ¼ tsk
  • Vatn, 1500 ml
  • Jógúrt, 150 g
  • Pipar, 3 tsk
  • Smjör, 2 msk
  • Olía, 9 msk

Undirbúningur

Pasta, sósa og yfirstráningur

  • 1500 ml vatn og 3 tsk salt í pott
  • Skera einn púrrulauk í tvennt langsum og svo í þunnar sneiðar. Saxa tvo skalottlauka og setja í skál með púrrulauknum.
  • Búa til kryddblöndu með því að blanda saman: 2 tsk grænmetiskraftur, 1 tsk túrmerik, 1 tsk malaður kóriander, ½ tsk malað cumin, ¼ tsk engiferduft, ¼ tsk kanill, ¼ tsk malað múskat og ¼ tsk salt
  • Rífa 40 g af parmesan osti
  • Saxa 10 g af graslauk

Kjúklinganaggar

  • Hræra saman í skál 20 g af sterku grófkorna sinnepi, 2 tsk salt, 2 tsk pipar og 150 g jógúrt.
  • Setja í aðra skál 150 g af panko raspi.
  • Skera kjúklingalundir í fjóra bita hverja.
  • Velta öllum bitunum upp úr jógúrtblöndunni
  • Taka bita úr jógúrtskálinni í skömmtum, velta upp úr panko raspi og leggja húðaða bitana til hliðar.

Aðferð

Pasta og sósa

  1. Kveikja undir potti á hæsta styrk til að ná upp suðu.
  2. Setja 500 g af penne pasta í vatnið, lækka í miðlungslágan hita og sjóða í 10 mínútur.
  3. Hella 250 ml af vatni í mæliglas, pastað fer í sigti og hella restinni af vatninu úr pottinum.
  4. Pottur aftur á helluna, púrrulaukur og skalottlaukur í pottinn ásamt 2 msk af smjöri. Hækka í miðlungshita og steikja í 2 mínútur.
  5. Hella vatninu úr mæliglasinu aftur í pottinn ásamt kryddblöndunni og malla í 3 mínútur.
  6. 250 ml af rjóma út í pottinn og malla aðeins þar til sósan þykknar.
  7. Parmesan osturinn ásamt 1 tsk salt og 1 tsk pipar í pottinn og hræra saman.
  8. Slökkva undir, pasta aftur í pottinn og hræra vel saman

Kjúklinganaggar

  1. Hita 9 msk af olíu á miðlungsháum hita
  2. Steikja kjúklingabita í skömmtum, ca 7 mínútur á hvorri hlið

Bera fram með söxuðum graslauk

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top