Froganoff

Hráefni

  • Entrecote, 800 g
  • Salt, 3 tsk
  • Pipar, 1 tsk
  • Hveiti, 3 msk
  • Ólivuolía, 2 msk
  • Smjör, 2 msk
  • Laukur, 1 stk
  • Sveppir, 200 g
  • Hvítlaukur, 1 rif
  • Svínateningur, 1 stk
  • Vatn, 3300 ml
  • Worcestershire sósa, 2 tsk
  • Sinnep, 2 tsk
  • Ítölsk kryddblanda, 1 tsk
  • Sýrður rjómi, 200 g
  • Pasta, 500 g

Undirbúningur

  • Grófsaxa 1 stk lauk og leggja til hliðar.
  • Sneiða 200 g af sveppum og leggja til hliðar.
  • Afhýða 1 hvítlauksrif.
  • Sjóða 300 ml af vatni og leysa upp 1 stk svínatening.
  • Skera 800 g af nautakjöti í munnbita og velta bitum upp úr 1 tsk salti, 1 tsk pipar og 1 msk hveiti.
  • Setja 3 lítra af vatni í pott ásamt 2 tsk af salti (fyrir pasta)

Aðferð

  1. Hita 2 msk af ólívuolíu á miðlungsháum hita á pönnu.
  2. Brúna kjöt í nokkrar mínútur. Leggja það svo í skál til hliðar, lækka í miðlungshuta og bæta 2 msk af smjöri á pönnuna.
  3. Kveikja undir pottinum fyrir pasta.
  4. Steikja lauk á pönnu þar til hann verður glær.
  5. Bæta sveppum og hvítlauk á pönnuna og steikja þar til sveppir eru mjúkir.
  6. Hræra 2 msk af hveiti saman við og svo fer svínasoðið á pönnuna, ásamt 2 tsk sinnep, 2 tsk worcestershire sósu og 1 tsk af ítalskri kryddblöndu.
  7. Hræra vel saman, en á meðan pannan nær upp suðu fer pasta í pottinn og það soðið eftir leiðbeiningum.
  8. Eftir 5 mínútur af suðu á pönnunni fer kjötið aftur út í og látið malla í örfáar mínútur.
  9. Pannan af hellunni og hræra 200 g af sýrðum rjóma saman við. Bera fram ásamt soðnu pasta – jafnvel blanda því saman við.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top