Chorizo- og kjúklingapasta

Hráefni

  • Pasta, 500 g
  • Vatn, 1400 ml
  • Salt, 3 tsk
  • Pipar, 2 tsk
  • Olívuolía, 2 msk
  • Kjúklingalundir, 800 g
  • Paprika, 1 stk
  • Chorizo, 1 stk (150 g)
  • Pastasósa, 1 krukka (400 g)
  • Rjómi, 250 ml
  • Rifinn cheddar, 150 g
  • Rifinn mozzarella, 250 g
  • Parmesan, 50 g

Undirbúningur

  • Setja 1400 ml af vatni og 2 tsk af salti í pott (fyrir pasta)
  • Skera 1 stk (150 g) chorizo og 1 stk papriku í litla bita og það fer saman á disk eða í skál.
  • Skera 800 g af kjúklingalundum í fjóra bita hverja og velta þeim upp úr 2 tsk pipar og 1 tsk salt.
  • Setja 2 msk af olíu á pönnu.
  • Blanda einni krukku (400 g) af pastasósu við 250 ml af rjóma í sósupott.
  • Rífa 50 g af parmesan osti.
  • Forhita ofn við 190° undir/yfir.

Aðferð

  1. Kveikja undir hellunni með vatninu á hæsta styrk. Þegar fer að sjóða, þá lækka í miðlungsháan hita, setja pasta út í og láta sjóða í 10 mínútur.
  2. Kveikja undir hellunni með pastasósu og rjómablöndunni á miðlungsstyrk. Leyfa þessu að malla í rólegheitunum á meðan allt annað er að eldast. Hræra í, af og til.
  3. Kveikja undir pönnunni með olíunni á miðlungsháum styrk. Þegar olían er orðin heit, þá fer kjúklingurinn á pönnuna í rúmlega 5 mínútur.
  4. Næst er að blanda chorizo og paprikunni saman við kjúklinginn á pönnunni og malla í rúmlega 5 mínútur í viðbót.
  5. Hella vatni af pasta og pasta í skál, hella kjúklingu, chorizo og papriku af pönnunni í skálina og að lokum hella úr sósupottinum í skálina. Blanda öllu vel saman.
  6. Flytja yfir í eldfast mót, strá yfir mozzarella, svo cheddar og að lokum parmesan. Inni í ofn í 25-30 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top