🇰🇷 Bulgogi með hrísgrjónum, vorlauk og sesamfræjum

Innblástur: Damn Delicious

Hráefni

  • Nauta-ribeye, 700 g
  • Pera, 1 stk
  • Sojasósa, 65 ml
  • Púðursykur, 2 msk
  • Sesamolía, 2 msk
  • Hvítlauksrif, 3 stk
  • Engifer, 1 msk
  • Gochujang, 1 msk
  • Repjuolía, 1 msk
  • Vorlaukur, 3 stk
  • Sesamfræ, 15 g
  • Hrísgrjón, 300 ml
  • Salt, 2 tsk

Undirbúningur

Bulgogi

  • Skera ribeye í 7 mm sneiðar og setja í ziploc poka.
  • Hræra saman í skál:
    • 1 stk pera, afhýdd og gróft rifin
    • 65 ml sojasósa
    • 2 msk púðursykur
    • 2 msk sesamolía
    • 3 pressuð hvítlauksrif
    • 1 msk ferskt rifið engifer
    • 1 msk gochujang
  • Hella úr skálinni í ziploc pokann og leyfa að marinerast í ísskáp í a.m.k. 2 klst eða yfir nótt.

Hrísgrjón

  • 600 ml vatn og 2 tsk af salti í pott.

Yfirstráningar

  • Saxa græna hlutann af þremur vorlaukum.
  • Setja 15 g af sesamfræjum í lítið ílát.

Aðferð

Bulgogi

  1. Hita 1 msk af repjuolíu á pönnu á miðlungsháum hita.
  2. Brúna marineruðu kjötbitana í skömmtum, 3 mínútur á hvorri hlið.

Hrísgrjón

  1. Kveikja undir potti með 600 ml vatni og 2 tsk salti, á hæsta hita.
  2. Þegar fer að sjóða, þá setja 300 ml af grjónum út í og lækka í hita í lágan hita. Leyfa að malla undir loki í 10 mínútur.
  3. Slökkva á hellu, en gefa þessu 10 mínútur í viðbót undir loki.

Framreiðsla

Hrísgrjón á disk, kjötið yfir grjónin og yfirstráningar eftir smekk.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top