Appelsínukaka

Innblástur: Del’s Cooking Twist

Hráefni

  • Egg, 3 stk
  • Sykur, 160 g
  • Appelsína, 1 stk
  • Smjör, 150 g
  • Hveiti, 160 g
  • Lyftiduft, 1 tsk

Undirbúningur

  • Forhita ofn í 180° undir/yfir.
  • Bræða 150 g af smjöri.
  • Rífa börk af 1 stk appelsínu og kreista safa úr henni.
  • Setja í skál 160 g af sykri og 3 egg
  • Í aðra skál fer 160 g af hveiti og 1 tsk lyftiduft

Aðferð

  1. Hræra egg og sykur vel saman.
  2. Bæta hveiti og lyftidufti út í og aftur hræra vel saman.
  3. Bæta bræddu smjöri, appelsínusafa og rifnum berki út í og hræra vel saman í síðasta skipti.
  4. Hella í brauðform og inn í ofn í 40 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top