Afmælisplata #9: Slayer – Reign in Blood

Reign in Blood er 39 ára í dag!

Víða sér maður að platan hafi verið gefin út 7. október, en það getur ekki staðist skv. þessari grein frá 12. október sama ár.
Þessi plata er almennt talin ein af bestu plötum þeirra. Tæpur hálftími af gæða thrash metal! 🤘 Ég hef þetta stutt líkt og platan er. Ath: Textarnir eru ekki fyrir viðkvæma.

Hlið 1
  1. Angel of Death
    Lag um Josef Mengele og tilraunir hans á föngum í Auschwitz. Klassík!
  2. Piece by Piece
    Morðingi, mögulega mannæta bútar niður fórnarlamb sitt.
  3. Necrophobic
    Sjúklegur ótti við dauðann með hrottalegum lýsingum.
  4. Altar of Sacrifice
    Þetta lag var nefnt í málsókn gegn Slayer eftir að morðingi sagði það hafa verið innblástur.
  5. Jesus Saves
    Kaldhæðni um kristna frelsun.
Hlið 2
  1. Criminally Insane
    Morðingi á stofnun sem þráir að sleppa út og myrða meira.
  2. Reborn
    Dauðadæmd norn sem á að brenna á báli. Hún ætlar sér að endurfæðast og ná fram hefndum.
  3. Epidemic
    Banvænn faraldur sem drepur fólk hægt og rólega.
  4. Postmortem
    Fjallar um þráhyggju fyrir dauðanum.
  5. Raining Blood
    Þeir loka plötunni með þekktasta lagi sínu. Maður sem hefur verið útskúfaður frá himnaríki og þráir hefnd.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top