
Double Fantasy er 46 ára í dag!
Þetta eintak kemur úr safni foreldra minna.
Eftir fimm ára pásu frá tónlist kom út sjöunda sólóplata Lennons og sú fimmta þar sem Yoko var með honum, en sú síðasta á meðan hann lifði. Lennon samdi helming laganna og Yoko hinn helminginn. Platan fékk dræmar viðtökur til að byrja með en fékk allt aðra merkingu þegar Lennon var myrtur aðeins fáeinum vikum eftir útgáfu plötunnar.
Nokkrum klukkustundum áður en Mark Chapman myrti Lennon, þá hafði Lennon áritað plötuna fyrir hann. Það eintak var selt á 922.500 dollara árið 2020!
Hlið 1
- (Just Like) Starting Over
Samband þeirra var stormasamt og skorti traust. Þetta er hlýlegt lag um nýtt upphaf. - Kiss Kiss Kiss
Það er svolítið erfiðara að átta sig á meiningum laga Yoko Ono. Það eru stunur í laginu og hún söng það í myrkri til að ná réttu stemmningunni. - Cleanup Time
Sukklífi lokið og jafnvægi náð í heimilislífinu. - Give Me Something
Yoko vill að Lennon sé hreinskilinn. - I’m Losing You
Lennon hefur áhyggjur af því að Yoko muni yfirgefa hann. - I’m Moving On
Mögulega svar við laginu á undan? - Beautiful Boy (Darling Boy)
Einstaklega fallegt lag um son þeirra Sean Lennon. Maður tengir sterkt sem faðir.
“Life is what happens to you while you’re busy making other plans” finnst mér alltaf flott lína.
Hlið 2
- Watching the Wheels
Lennon að svara þeim sem undruðust brotthvarf hans úr tónlistarbransanum. Fjölskyldulífið fór vel með hann. Frábært lag. - I’m Your Angel
Ástarjátning Yoko. - Woman
Lennon að syngja um konur, væntanlega með Yoko í huga. - Beautiful Boys
Yoko að syngja um drengi og menn, væntanlega með Sean og John í huga. - Dear Yoko
Ástarjátning Lennons. - Every Man Has a Woman Who Loves Him
Yoko telur að allir menn eigi konu sem elski þá. - Hard Times Are Over
Lokaorð um að erfiðum kafla sé lokið og að það sé bjart framundan. Átakanlegt í ljósi þess sem gerðist stuttu síðar.
