Afmælisplata #56: Arctic Monkeys – AM

2023 útgáfa – Discogs: €26.99

AM er 13 ára í dag!

Ég man eftir að hafa heyrt fyrstu tvö lög plötunnar svolítið í útvarpsspilun á sínum tíma og kunni ágætlega við. Það var þó ekki þannig að ég hafði hugsað mér að kaupa þessa plötu.
Það var svo í fyrra sem ég renndi plötunni í heild sinni í fyrsta skipti, þegar ég tók þátt í plötu dagsins verkefni Jón Inga. Þetta var allavega nógu áhugavert til að ég keypti þessa plötu nýverið og hún er að vaxa hratt í áliti.

Hlið One
  1. Do I Wanna Know?
    Þráhyggjupési veit ekki alveg hvernig staðan er í sambandi.
  2. R U Mine?
    Sýnist þetta vera af sama meiði og fyrsta lag.
  3. One for the Road
    Lokadrykkur og eflaust einhver dýpri merking. Josh Homme syngur með í þessu lagi.
  4. Arabella
    Alex Turner söngvari Arctic Monkeys átti kærustu sem heitir Ariella. Nafnið Ariella er hér flett saman við vísindaskáldsöguna Barbarella og úr verður Arabella.
  5. I Want It All
    Queens of the Stone Age fílingur yfir þessu. Kynþokki og þrá.
  6. No. 1 Party Anthem
    Misvísandi titill, þar sem þetta er hægasta lag plötunnar eða a.m.k. á fyrri hlið.
Hlið Two
  1. Mad Sounds
    Seinni hlið opnar á rólegu og notalegu lagi.
  2. Fireside
    Aðeins keyrt upp aftur. Umfjöllunarefnið er að halda áfram, mögulega eftir missi, ástarsorg eða eitthvað slíkt.
  3. Why’d You Only Call Me When You’re High?
    Hugarangur í kringum slitrótt samband og kynlíf án skuldbindinga.
  4. Snap Out of It
    Hrista af sér eitthvað bras
  5. Knee Socks
    Josh Homme aftur hér. Hann þarf að vera með í svona kynþokkaveislu.
  6. I Wanna Be Yours
    Mesta spilun allra laga plötunnar á Spotify. Endurgerð af ljóði John Cooper Clarke frá 1982.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top