
Börn Loka er 14 ára í dag!
Fyrstu kynni mín af Skálmöld voru útgáfutónleikar þessarar plötu. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í, en hef verið fanboy síðan. Eintakið mitt er tvöfaldur svartur vínyll í gatefold umslagi með aukalögum á hlið D. Í stað þess að fjalla um hvert og eitt lag sjálfur, þá ætla ég að stikla á stóru í sögunni eins og hún er í bæklingnum sem fylgir plötunni.
Börn Loka er konseptplata sem segir sögu Hilmars, sem hefur frá barnæsku séð um systur sína Brynhildi. Óðinn býður Hilmari tækifæri til að öðlast æru og sæti í Valhöll gegn því að takast á við Fenrisúlf, Miðgarðsorm og Hel. Þetta byrjar sem hetjuleg ferð en endar með hörmungum.
Platan byrjar á þessari vísu:
Loki heitir, Óðinn opni
augu Miðgarðsvætta.
Oki undir, vondu vopni
veldur, engra sætta.
Hlið A
- Óðinn
Óðinn felur Hilmari það verkefni að takast á við börn Loka og lofar honum æru og sæti í Valhöll. Hann varar hann þó við fórnarkostnaði gjafa guðanna. - Sleipnir
Hilmar kveður Brynhildi systur sína og leggur af stað á Sleipni, áttfættum hesti Óðins sem getur borið hann hvert sem er. - Gleipnir
Dvergur afhendir Hilmari fjöturinn Gleipni, eina þráðinn sem getur haldið Fenrisúlfi. - Fenrisúlfur
Hilmar tekst á við Fenrisúlf og nær að binda hann með Gleipni.
Hlið B
- Himinhrjóður
Hljóðheimur þar sem Hilmar heggur höfuðið af nautinu Himinhrjóði. - Miðgarðsormur
Hilmar heldur út á haf, með höfuð Himinhrjóðs sem beitu. Hann dregur Miðgarðsorm upp úr djúpinu og berst við hann. - Narfi
Á leið til Heljar hittir Hilmar mann sem gefur sig á tal við hann. Narfi varar Hilmar við þeim miklu fórnum sem fram undan eru og segir Loka óútreiknanlegan. - Hel
Hilmar tekst á við Hel með orðastríði í síðasta verkefni sínu. Hel áttar sig á að hún nær ekki tökum á sál þessa hugrakka og hjartahreina manns.
Hlið C
- Váli
Þegar Hilmar snýr aftur til Brynhildar birtist Váli og systur hans er fórnað á grimmilegan hátt. - Loki
Hilmar áttar sig á að hann hefur öðlast æru og sæti í Valhöll, en það kostaði líf systur hans. Sá sem birtist í byrjun var í raun Loki.
Platan endar á sléttuböndum frá opnun plötunnar til að undirstrika blekkinguna.
Sætta engra veldur vopni,
vondu undir oki.
Vætta Miðgarðs augu opni,
Óðinn heitir Loki.
Hlið D (aukalög)
- Eldur (Live)
Með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Jarðhræringalag. - Loki (Live)
Með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
